Ašalvalmynd

Prófķll

  • Nafn: Heiša Salvarsdottir
  • Stašur: Borgarnes

Auglżsing

Pirringsblogg og kannski smį gleši

10. aprķl 2008 klukkan 11:13
Þessi vika er bara búin að vera rosaleg. 
mín elskulega HP tölva gaf bara upp öndina alveg korter í próf. Haldið þið að það sé bara ekki alveg týpískt. Það eru nota bene bara öll gögnin mín þarna og ég er ekki enn búin að komast í aðstöðu til að taka þau út af harða diskinum hjá mér þar sem að tölvunörravinir mínir eru annaðhvort út úr landi eða bara í ruglinu!!!
í öllu þessu óðagoti öllu saman þá ég keypti ég mér að vísu rosalega fallega Mac book tölvu. Sem er ekki í frásögur færandi nema það að það er allt annað viðmót í henni heldur en gömlu PC og ég hef því þurft að læra allt upp á nýtt. Átti ekki office pakka sem að ég verð eiginlega að hafa fyrir tölvuna mína. 
Fyrir utan það að minn heittelskaði prentari er ekki að virka með nýju tölvunni og frú Heiða Salvarsdóttir þurfti því að fá sér nýjan prentara sem að passaði við nýju tölvuna. Ég er því satt besta að segja vel græjuð og pabbi minn er 6000 kr fátækari. 
skólamálin mega alltaf vera betri þar sem að mér finnst ég vera bara að skíta á mig þar sem að ég er kannski ekki búin að vera eins dugleg og ég hefði þurft að vera fyrir þetta. Því er í gangi massíft átak þar sem að ég er að læra eins og motherfukker. 
Stressið er satt best að segja samt alveg að fara með mig og stundum bara lamast maður og allt lokast og maður getur ekki hugsað. Það gerðist t.d. núna í vikunni þar sem að ég hefði átt að vera að gera 15% verkefni í reikningsskilum en það bara lokaðist allt:( Veit ekki hvernig ég á að ná þeim áfanga. 
Þetta er bara alls ekki létt því að ég er með svo massífa pressu á mér þvi að ef að ég næ ekki ÖLLUM prófunum þá missi ég íbúðina mína þar sem að ég stóð mig svo illa á síðustu önn:( Við þetta allt fyllist ég bara stressi! Ég er alveg að fíla námið mitt og elska að vera hér og Birta elskar leikskólann sinn. 
Góðu fréttirnar eru kannski samt þær að ég fékk 8,5 fyrir ritgerðina mína í haglýsingu og við vorum alveg með þeim hæstu ég og Eva Katrín. Ritgerðin gildir nota bene 60%.
Vantar bara einhvern mega kraft í mig allt í einu. Ég er bara engan veginn að finna þetta hárfína jafnvægi á milli þess að eiga barn og vera í skóla. Það er bara drulluerfitt. Ef að ég er að eyða of miklum tíma með barninu mínu finnst mér að ég ætti líka að vera að gefa meira í skólann og öfugt. 
Hvað gæfi stundum líka fyrir að þurfa ekki alltaf að biðja um hjálp heldur að hún kæmi til mín!!!
en þetta er víst nægur pirringur í einu...

Framhald af pįskum

28. mars 2008 klukkan 14:20
Ég er alveg biluð á þessu bloggi sko..
Það rættist alveg stórkostlega úr helginni sko. Fékk hringingu á laugardagskvöldið þegar að ég lá á meltunni eftir heimabökuðu pizzuna mína frá honum Einar Braga og Aðalbjörg þar sem að mér var boðið að kíkja yfir á Þórðargötuna í smá heimsókn. Ég mæti auðvitað í flíspeysu því að ég hélt að þetta yrði bara rólegt og kósy þangað til að allir fengu þá hugmynd að fara á vinakaffi. Þannig að ég var tuskulegasta manneskjan þar inni. Síðan héldu flestir drykkjunni áfram nema ég sem að var edrú auðvitað á bíl. Davíð og Einari tókst að klára heila viskíflösku (ógeð), enda fundu þeir fyrir því daginn eftir. Var svo bara komin heim klukkan hálf 3 og voða góð eitthvað.

Daginn eftir var páskaeggjaátið mikla. Mér hafði tekist að gleyma eggjunum okkar Birtu fyrir sunnan en við fengum samt báðar lítil egg. Birtu fannst þetta bara æði en var ekkert að tapa sér í gleðinni en smakkaði smá. Borðaði meðal annars hluta af málshættinum en hvað er það á milli vina. Svo var bara legið í leti og horft á tv. Fékk svo rosalega góðan hamborgarahrygg sem að mamma eldaði.
Eftir matinn var reynt að læra smá en það var ekki alveg að takast því að tölvan mín var bara alveg í ruglinu.
Fór þá bara til Thelmu um kvöldið og hitti stelpurnar. Eins og alltaf æðislega gaman. Fór svo bara heim að lúlla snemma með stelpunni minni eftir að hafa leitað að litla dýrinu honum bróður mínum. Stelpurnar fóru annars á ball í Stykkishólmi en ég var ekki alveg að nenna.

Við mæðgur komum svo heim til okkar í rvk á miðvikudaginn eftir að hafa framlengt páskafríið okkar um einn dag. Alveg ótrúlegt samt hvað maður þarf mikið dót eftir eina viku. Græddi svo aðeins á henni ömmu sem að gaf mér Carmen rúllurnar sínar. Ég nota bene elska Carmen rúllur. Birta saknar samt ömmu sinnar rosalega mikið eftir að hafa verið hjá henni í alveg viku en þær hittast vonandi fljótlega enda miklar vinkonur.

Framundan er svo bara lærdómur. Er að reyna að hafa mig til í að læra en er eiginlega bara mest dofin eftir einn tíma í tannlæknastól. Ég deyfist svo hrikalega illa að ég þarf alveg einhverjar hrossadeyfingar. Ég var t.d. í stólnum hjá honum frá 10-11 og ég er enn dofin upp í heila 4 tímum síðar. Spurning um að leggja sig.

Þurfti svo aðeins að fara í kringluna áðan og tókst rétt svo að sneiða framhjá mótmælunum sem að voru að byrja hjá flutningabílstjórunum. Verð samt að segja að þetta er flottasta framtak sem að ég hef séð íslendinga gera lengi. Veit ekki hvort að mér myndi þykja það sama þegar að ég þyrfti að komast eitthvað á nóinu en eitthvað þarf að gera. Auðvitað bara fáranlega þetta verð á bensíni. Allir ættu í raun að boycotta það að fá sér bensín.

En ég held að málið sé að fá sér blund
Later píps

Pįskarnir

21. mars 2008 klukkan 13:28
Hóst, löngu kominn föstudagur!

ég veit það. Engin orð fá lýst því hvað okkur Evu þotti gott að skila ritgerðinni okkar. Þetta var tvísýnt þar sem að ég skilaði henni inn klst fyrir skil og var bara alveg massasátt. Eftir mikla yfirferð loksins. Lét Palla lesa hana yfir og hann var að vísu ekki alveg sáttur við þetta en hugsanlega er best að sjá hvað honum sigurði Snævarr finnst. Eftir að hafa skilað þessu þá var ég eitthvað bara svo uber happy.

Birta mín fór í afmæli hjá Rebekku frænku sinni og á meðan skellti ég mér í 1 árs afmæli hjá Helga Stefán. Þvílíkt flott hjá henni Ástu minni og rosalega gott. Náði svo í barnið og skutlaðist með hana upp í Borgarnesi þar sem að hún ætlaði að vera þangað til á mánudaginn.
Um kvöldið var svo afmæli hjá henni Agnesi þar sem að auðvitað var tekið á móti manni með góðum veitingum. Það þarf ekki að spyrja að því. Fékk þarna ógeðslega gott kjúklingasalat. eftir síðustu vikur var ég soleiðis engan veginn tilbúin til að fá mér í glas og var satt best að segja komin í rúmið upp úr miðnætti. Alveg uber léleg.
Fékk svo gest í mat daginn eftir þannig að það rættist úr þessari helgi.


Svo er það bara búið að vera þetta venjulega. Skóli og með því. Seinasti dagurinn fyrir frí á þriðjudaginn. Mamma fór svo aftur með stelpuna upp eftir því að ég var að fara að halda saumó fyrir H6:) Bjó til Doritoskjúlla og ávexti með kókosbollum. Allir vel  saddir eftir það og gaman að hitta allar stelpurnar og slúðra smávegis.
Kom svo í Borgarnesið góða þar sem að eru bara rólegheit. Lúðinn ég samt, tókst að gleyma páskaeggjum okkar mæðgna heima en því var reddað þegar að ég og mamma fórum að versla í gær. Ég skal bara segja ykkur það að það verður borðað og borðað alla páskana. Búin að kíkja a Vinakaffi með kindinni og fékk svona ekki góðan Swiss Mocca. Maður er svo góðu vanur úr höfuðborginni;)
Bækurnar mínar fengu að fljota með uppeftir eða mér tókst að gleyma þeim ekki og ég held að áætlunin sé að opna þær og hugsanlega lesa upp úr þeim líka.
Annars er bara planið að hafa það sem best. Áfengi verður látið eiga sig og fjölskyldan í hávegum höfð. Dóttir mín er enn sem komið er bara búin að vera yndisleg þessa páska, algjör prinsessa og svo stillt. Það verða allir að eignast svona gullmola.
In a nutshell, Lífið er gott og guð er góður.
Hafið það gott um páskana:)
Hef annars fullan hug

örblogg

10. mars 2008 klukkan 10:39
Blogga á föstudaginn þegar að ég skila vibbaritgerðinni minni!

Enn ein helgin lišin

25. febrśar 2008 klukkan 11:44
Þetta ár á eftir að fljúga svo hratt frá manni!
Fékk aðeins frí á helginni þar sem að Birtan mín fór til pabba síns á föstudagsmorgninum. hún byrjaði auðvitað á því að orga á hann eins og hún gerir alltaf fyrst. En fór svo að lokum með pabba sínum og öskraði á hann alla leiðina heim til hans og var leiðinleg alveg þangað til að hún fékk snakk. Þá var allt alveg æðislegt aftur:) Það er ekki að spyrja að því að þessi stelpa hefur mikla matarást.

Ég notaði tækifærið til að fara að djamma eftir að hafa stútað nokkrum verkjapillum og sofið yfir föstudaginn. Þetta leit reyndar ekki vel út en svo náði ég bandi við hana Arndísi Ey æðislegustu og fór í mega stelpupartý eftir að Aðalbjörg skutlaði mér. Held að ég hafi bara drukkið hálfa stóra passúa flösku og vodka þar.
Svo lá leiðin niður á Kaffibarinn í fylgd með Dísu skvísu. Svo næst Hressó og svo endað á Apótekinu þar sem að var drukkið ótæpilega mikið og farið MJÖG seint heim að lúlla.
Dúllan mín kom svo heim um 4 leytið alveg alsæl eftir að hafa verið hjá pabba sínum og svaf eins og engill heima hjá honum í sínu eigin rúmi.
Fattaði svo að Eurovision var u kvöldið þannig að ég sníkti mér far fyrir mig og Birtu Guðrún upp í Borgarnes til mömmu og var þar í góðu yfirlæti í þynnkunni minni að fylgjast með því.
Kíkti svo í partý til hennar Fanneyjar þar sem að Borgarness finest voru í partýi. Var engan veginn að meika að drekka og var því bara á bílnum. Tókst nota bene áður en að ég fór að týna bíllyklinum hennar mömmu áður en að ég fór út af því að ég hafði komið heim í svo miklum flýti af því að Birta var með nr 2 á rassinum og mamma með gubbupest:)

því fékk ég aukalyklana en fann þá auðvitað daginn eftir í veskinu mínu samt sem áður. En það voru allir nema ég fullir og sumir mismikið. Ingvar minn nota bene þurfti að fara á Dússabar að æla og sögur segja að það hafi heyrst á árshátið Loftorku í næsta húsi. hehe.
Rúntaði svo aðeins með honum Fannari mínum á milli þess sem að ég skutlaði fólki. Langt síðan að ég hef hlegið svona ógeðslega mikið eins og á lau. kvöldið.

Vaknaði svo allt of snemma með dótturinni daginn eftir og við dormuðum yfir barnaefninu en vaknaði svo alveg þegar að Jenni bró kom heim með eitthvað fórnarlamb klukkan 9 um morguninn.
Hitti svo hana elsku Thelmu mína aðeins og það er alltaf æði:)
Svo var bara brunað í bæinn aftur og mega gott að sofa í eigin rúmi!


Já og Fanney ég mótmæli því að ég sé eitthvað utan við mig! thumbs up! hahaha

bla bla og ég er oršin gömul

17. febrśar 2008 klukkan 15:32
Er ekki einhver sem að vill setja einhverjar krónur í ferðasjóð fyrir mig svo að ég geti farið út til Atlanta og hitt hana Guðný mína. Hún er er reglulega á nýja blogginu sínu að segja af reisum sínum í Target og aðra draumastaði mína. Dæs. Mig langar!

Annars er allt bara alveg bilað í skólanum. Endalaus verkefni í Stærðfræði með kennara sem að nennir varla að kenna, próf í rekstrarhagfræði 29 feb, próf í rekstrarbókhaldi 4 mars og skil á ritgerð í haglýsingu 11. mars! Semsagt bara endalaust að gera. Ég hef gert mitt og ég held lesið 10 bls yfir alla helgina.

Annars er ég held ég að verða gömul. Nota bene þá er endalaust langt síðan að ég hef verið barnlaus yfir helgi og ég ætlaði aldeilis að nýta mér það.
Tilraun 1: föstudagur; Skilaði barninu mínu af mér til hennar mömmu. Fór og sótti um líf og sjúkdómatryggingu og innbúsryggingu.  Skellti mér í ljós og ég tók helvíti mikinn lit. Fór svo með henni Hófí tilfinningaflaki á PS I love you í bíó. Ég er greinilega töluvert harðari af mér en hún Hófí sem að kom rauðeygð af myndinni. Verð samt að viðurkenna að það komu tár hjá mér og stór kökkur stundum. Alveg ógeðslega fyndið að heyra alls staðar snökt og allir að soga í nefið allt í kringum mann. Þetta er samt algjör stelpumynd með alvöru gaurum í.  Ég lærði svo um kvöldið og hékk alltof lengi á  msn.....
Tilraun 2: laugardagur; vaknaði fyrir hádegi alveg dauðþreytt og skellti mér í dæmatíma með baugana mína. Fór svo heim aftur að lesa.
Fór svo með elsku Söndru minni á Vegó og fékk versta hamborgara í heimi. Maturinn þarna er bara orðinn vondur. Vitiði um einhvern stað sem að ég og Sandra getum þá farið að hanga á?
Ætlaði svo að kíkja með henni Söndru í partý sem að tókst ekki betur en svo að ég sofnaði eftir að hafa farið í bað. Vaknaði eins og fífl svo aftur um nóttina og fór að taka til.
Semsagt niðurstaða helgarinnar er sú: mömmur sofa bara þegar að þær eru barnlausar, ekkert áfengi var innbyrt um helgina, ég fór ekki út að skemmta mér tja fyrir utan bíó, ég er orðin fallega kaffibrún og var að mestu ein að dunda mér í góðu yfirlæti og fékk mitt fix af Dr. Phil. Hversu sad er ég?

Punktafęrsla

06. febrśar 2008 klukkan 13:40
*Þetta byrjaði vel eftir að það voru teknir nefkirtlarnir. Þá byrjaði bara strax að koma hiti. Þegar að mér var hætt að lítast á blikuna eftir 2 daga fór ég með hana á lækavaktina sem að sendi mig á Barnaspítalann. Þar var hún greind með lungnabólgu, Spreptókokka og smá í eyrunum. Enn önnur pensilínmeðferðin hjá henni BG! Geri aðrir betur.

*Smakkaði bestu bollur sem að ég hef smakkað hjá henni ósk á Bolludaginn. Þetta var bara geggjað.

*Fór í mat til pabba í gær og fékk saltkjöt og baunir, ég held að það sé bara best að maður fái þetta bara einu sinni á ári því að ég lá bara alveg á meltunni eftir þetta. En samt endalaust gott alveg hreint.

*Ein af bestu vinkonum mínum á afmæli í dag, eða hún Anna mín. Anna er súpergóð stelpa og góð mamma. Hún er núna í dag 20+ (maður á aldrei að segja upphátt tölur eftir að maður verður eldri en 20 ára)!. Til hamingju með daginn Anna mín.

*Lærdómurinn er ekki alveg að gera sig hjá mér. Ég enda alltaf á því að sofna með barninu á kvöldin og vakna um nóttina og get svo ekki sofnað aftur. ég er orðin megapirruð á þessu ástandi sko!

*Er að byrja á vítamínkúr þessa dagana. Jóna gaf mér í gær OMEGA eitthvað pillur. ég veit ekki hvernig maður fer að því að koma þessu niður því að þetta er það stórt að það væri alveg hægt að taka feil á þessu og endaþarmsstílum.

*Partý á laugardaginn, Vantar föt og veit ekki hvort að ég eigi að vera edrú eða hvað. Þetta er eftir allt saman lengst út í rassgati og ég held að maður þurfi ferðastyrk til að komast þangað!

*Spurning með að kíkja í Borgarnesið á morgun. Hver af ykkur Borgnesingum vill hitta mig? Er að reyna að dobbla ömmu til að búa til pizzu, en veit ekki hvernig gengur;)

*Fékk hana Birtu loksins til að prufa nýja prinsessubúninginn sinn. Orð fá ekki lýst því hvað hún var montin með hann og það var loksins snúið sér í hringi. Hún verður mynduð í bak og fyrir á eftir þegar að hún kemur heim eftir að ég fékk lánaða myndavél frá henni Erlu perlu;)

*Ég mótmæli þessum kulda og því að ég sé að verða gömul!

Ašgeršin mikla afstašin!

30. janśar 2008 klukkan 13:51
Þá er loksins þessi aðgerð hennar Birtu Guðrúnar afstaðin. Við vorum í dag í Glæsibæ í nefkirtlatöku sem að gekk bara gríðarlega vel.
Var að vísu erfiður tími fyrir litlu snúlluna mína sem að mátti ekkert borða og hún öskraði á ísskápinn hérna heima áður því að hún mátti hvorki fá vott né þurrt áður en að við fórum en við mættum 10:30.
Það er alveg óhætt að segja mömmuhjartað fór alveg í klessu þegar að hún var svæfð og hvað þá að sjá hana steinrotaða eftir aðgerðina.
En hún vaknaði stuttu eftir að ég fór inn til hennar aftur og öskraði þá alveg eins og ljón á meðan að blóðið rann úr nebbanum.
Læknirinn sagði samt að nefkirtlarnir hefðu verið dáldið stórir og frekar mikið af ógeði þarna hjá henni og því var alveg rétt að fjarlægja þetta.
Eftir þetta fórum við í lengstu ökuferð ever þar sem að það var öskrað á mig allan tímann sem að við keyrðum heim. Þegar að heim var komið að þá vildi hún strax fá að borða í gær fyrir hádegi og er eiginlega búin að vera að borða síðan að hún kom heim. Það er t.d. ekki hægt að sjá á henni að hún hafi verið í neinni aðgerð í dag.
Þetta er bara best barn í heimi.

Af mér er annars að frétta er að ég er að gefast upp á tölfræðinni og fæ að fara í Rekstrarbókhald í staðinn. Ég er að vísu eftir á í öllum fögum og þarf að fara að drífa mig að ná því upp aftur.

Og að lokum, ég er ekki að trúa þessu með Dr. Phil. Hann er besti gaur í heimi og sjónvarpið væri ekki eins án hans. Hvað á allt white-trash í Bandaríkjunum að gera án hans!
Komment fólk!

Ég er bara on fire hérna

22. janśar 2008 klukkan 13:45
Ég ætti að öllu jöfnu að vera að gera tölfræðidæmi en nenni því samt ekki. og blogga því smá. Það eru mega útsölur alls staðar en eins og vanalega þá á ég engan pening. Reyndar þá spreðaði ég dáldið mikið á sjálfa mig um daginn og keypti mér 2 buxur á útsölunni og það dýrt andlitskrem að ég er ekki að fara að segja verðið hérna.
Helgin var bara æði. Við byrjuðum á því um laugardaginn eftir smá lúr að fara í afmæli til Katrínar Óskar sem að varð 2 ára. Alveg svaka stuð. Birta orðin alveg höfðinu hærri næstum því, hehe. Hún er annars svo fyndin þessi stelpa og reglusöm að það er alveg rosalegt. Katrín á alveg eins stól og Birta. Birta varð að sitja auðvitað í "sínum" stól á meðan að hún fékk köku. Svo varð alveg semi - vitlaust þegar að hún mátti ekki opna pakkann sem að hún taldi að hún ætti þótt að við værum að gefa katrín hann. Svo fékk Katrín alveg eins bók og hún átti. Þetta kemur svo sem allt með árunum. Þær höfðu allavega ágætlega gaman af hvor annarri.
Næsta skref hjá henni er svo að fara að æfa sig á koppnum. Aðalplanið er að leyfa henni að æfa sig bara í rólegheitunum og vera bara á chillinu bleiulaus fyrir framan sjónvarpið. Hún biður samt alltaf fljótlega um bleiuna sína aftur, snyrtipinninn minn. Var að vísu smá slys þar sem að það lenti smá "lumma" á gólfinu og þegar að ég sá hana hafði hún sjálf reynt að þrífa það með misjöfnum árangri. Allavega skemmtileg saga fyrir mömmur...
Annars er að koma febrúar og ég held að það verði bara rosalegur djammmánuður. Anna mín verður 24 ára og fer að fá hrukkur vonandi.
Saumaklúbbur í kvöld hjá Halldóru ...
kveðjupartý á morgun hjá henni Guðný sem er að fara bara að flytja til USA!
Gólfið mitt er svo komið með krónískan sjúkdóm sem að lysir sér í því að það er viðkomu eins og franskur rennilás...
Heimanámið mitt er víst eilífðarverkefni þannig að ég er farin að læra...
... og hver kann að gera CV og getur veitt mér vinnu í sumar?

Ég er komin aftur

18. janśar 2008 klukkan 21:16

Best að láta Fanney vera rólega. hún er eftir allt saman sú eina held ég sem að les þetta en ef að það eru fleiri endilega látið mig vita!

Prófin búin með hræðilegum árangri. 2 sumarpróf verða tekin í ágúst. vona að ég hafi einhvern sjálfsaga til að læra í sumar. Veit nú þegar að ég mun ekki hafa hann en ég verð að gera það til að þurfa ekki að sitja áfangana aftur.

Áramótin komu og ég fór á mótel Venus.
Áramótaheitið mitt er ekki að fara vel af stað. 
Fór um daginn í   sameiginlegt 25 ára afmæli hjá Einari Braga og innflutningspartý hjá Davíð og Jóhönnu. Þar var alveg megastuð alveg þangað til að ég var að fara í leigubílaröðina eftir miðbæinn þar sem að ég missti símann minn í götuna í hálkunni og skjárinn ónýtur. Ef að enginn er að telja þá er þetta 4 síminn sem að ég tapa/eyðilegg/stolið á innan við ári. bara svona ef einhver er að telja.

Birta Guðrún er alltaf alveg eins. Risastóra barnið mitt sem að er næstum því 90 cm og 13 kg. Vill samt alltaf láta halda á sér eins og prinsessu. Hún kemur held ég með nýtt og nýtt orð í hverri viku. Hún er búin að láta hafa fyrir sér um jólin og eftir þau. Eyddum jólunum með því að hún fékk streptókokka og með því um jólin. Síðan eftir áramót var það eyrnabólga nr. 400 síðan að hún fæddist og svo núna seinustu dagana þá er það upp og niður pestin skemmtilega. Hvenær fara börn að segja hvenær að þau þurfa að æla?

En það sér kannski fyrir endann á þessu því að það er farið að ræða það að taka nefkirtlana úr henni.


Annars er spurning um að fara að læra bara aftur.

Þetta er orðið það helsta.

Go wild á kommentum!